We are still running on becoming next greatest hjúkrunarfræðingar...

4. ÁRS HJÚKKUR AKUREYRI

26.08.2008 20:07:19 / eva björk

Fréttir af nýjustu hjúkkunum . . . .

Jæja stelpur.

Er ekki komin tími á að fá smá fréttir af öllum??? Ef einhver skoðar þessa síðu ennþá;).

Af mér sjálfri er allt gott að frétta. Er að tapa mér yfir öllum sætu strákunum hérna á suð-vesturhorninu. Bjó í 101 í sumar, vann á sængurkvennagangi og það var bara allt alveg í lukkunar. En nú er sumarið búið og ég er flutt úr miðbænum upp í Hlíðar í smá tíma. Ætla svo að taka að mér húsmóðursstörf í tæpan mánuð, með vinnu, hjá systkinum mínum meðan þau skella sér erlendis að sleikja sólina og svo frá og með 1. nóvember þá vona ég að ég eigi mér griðarstað í höfuðborginni þannig að maður geti farið að undirbúa jólin á réttum tíma og svona.
Núna er ég að fara að hætta á sængurkvenna allavega svona fast og er að byrja á kjörári. Fer á hjartalyf (14 G), barnaskurð og vöknun á Hringbraut. Er voðalega spennt yfir þessu öllu saman en jafnframt kvíðinn að byrja á einhverju svona nýju og vera alveg blaut á bak við eyrun.

Stefni á að koma norður allavega tvisvar sinnum í vetur og þá væri nú gaman að hitta einhverjar.

Hvernig væri svo að hafa eins og einn kaffihúsahitting þið sem eruð í höfuðborginni?

Vonast til að heyra frá sem flestum.

Eva Björk (still blogging;0)

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2008 08:34:41 / eva björk

Útskriftardagurinn okkar

Dagurinn er upprunninn:)

Innilega til hamingju með daginn allar saman. Vegni ykkur öllum sem best í framtíðinni.

Njótið hans í botn. Við eigum það allar virkilega skilið.

Hlakka til að sjá ykkur í dag sem og mæta í ykkur einhvers staðar á göngunum í framtíðinni;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 14:24:44 / hrabba

Eigum við að gera eitthvað eftir kynninguna á föstudaginn?

Sælar systur :d  Nú er þetta allt að hafast hjá okkur en hvernig er það, er einhver stemming fyrir því að gera eitthvað skemmtilegt eftir kynninguna? Mér finnst svo margir vera að tala um það, eins og að fara út að borða eða grilla heima hjá einhverri sem býður sig fram eða bara hittast og halda gott partý. Þurfum að ákveða það fljótlega, allavegana ef við ætlum út að borða saman, Edda stakk upp á Strikinu, mér lýst vel á það en hvað segið þið. Endilega látið þetta berast og commentið

» 16 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 13:10:31 / eva björk

mission Lokaverkefni complete

...Elsku stelpur...

Innilega til hamingju með nýja barnið ykkar a.k.a. lokaritgerðina;)


Ég veit ekki með ykkur en hjá mér eru blendar tilfinningar gagnvart því að vera nánast búin með skólann. Ég á eftir að njóta þess að flytja suður og fara að vinna en ég á líka eftir að sakna Akureyrar og skólans. Kom norður á laugardaginn, losaði og þreyf íbúðina og fór heim samdægurs (prósessin tók um 14 klst). Það var smá tregi  (líking við dramantískt atriði úr bíómynd) þegar ég lokaði hurðinni á tómri íbúðinni minni í síðasta sinn:(. Ég byrja tímann eftir skólagöngu eins og sannur námsmaður, nefninlega með fríi því ég fæ engar vaktir á sængurkvenna og er að reyna að njóta frísins sem ég hef. Þann 31. maí flýg ég svo að landi brott í 11 daga ferðalag til Danmerkur. Kemur ykkur sennilega öllum á óvart.

Hlakka til að hitta ykkur þann 30.maí þegar við sýnum hvor annarri stol okkar og svo 14. júní þegar við eigum breiðustu brosin;). Dreymdi í nótt að það væri korter liðið af útskriftinni og ég var búin að steingleyma henni. Var ósturtuð, fötin mín voru fyrir sunnan og tíminn í hárgreiðslu var löngu tapaður. Þetta hlýtur bara að veita á gott? Ekki satt?

Hafið það gott.

Kveðja frá Akranesi, Eva Björk


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 12:02:06 / eva björk

Prinsessa var það

Rebekka fæddi litla prinsessu í gær, 12. maí kl 20:47. 14 merkur og 50.5 cm. Öllum  heilsast vel.

Innilega til hamingju með þetta Rebba og Gunni:). Hlökkum til að sjá ykkur öll þrjú.

Til allra hinna..... lokaspretturinn gangi ykkur sem best;)

Kær kveðja, Eva Björk

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 20:48:41 / birgitta

Sælar stelpur mínar.....

Þá fer að koma að þessu hjá okkur og við förum að útskrifast úr skólanum :) veiii... !!!! Það er ekki hægt að segja annað 8) hehe...

En við ætlum að hittast á morgun (laugardag) á Greifanum kl 20:00 (eigum pantað borð á mínu nafni) þar ætlum við að fá okkur í gogginn og e.t.v. einn léttan með... allavega þær sem eru ekki að fara að vinna :$
Svo er ekki vitað með framhaldið... þ.e. hvert verður farið á eftir, það eru einhverjar að hugsa málið svo... ER EINHVER SEM BÝÐUR FRAM HÚSNÆÐI FYRIR OKKUR 14 SEM ERUM BÚNAR AÐ LÁTA VITA ??? PLÍÍÍÍÍÍS.....
Þær sem eru ekki búnar að láta vita... endilega gera það sem fyrst !!! Ég þarf að láta vita með endanlegan fjölda á morgun... fyrir kl 15 ;)

Sjáumst hressar á morgun... 8) 8)
Birgitta


» 11 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 13:50:11 / eva björk

enn og aftur blaðið

jæja það lítur út fyrir að það verði ekkert úr þessari blaðagerð.
ég fékk tvær með mér í þetta en önnur þeirra verður ekki á landinu í 3 vikur þannig að ég held að þetta gangi ekki upp. held að þetta sé of mikil vinna fyrir bara þrjá! þannig að þetta er dottið út af dagskránni. Vildi bara láta ykkur vita!

kv baddy


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 01:17:25 / eva björk

Síðasta Árshátíðin

Góðann og blessaðann sunnudaginn.8)

Hvað segið þið þá? Ég sakna þess nú svolítið að vera ekki í skólanum og hitta ykkur.

Það er nú aldeilis ánægjulegt hvað blaðið okkar fær frábærar undirtektir. Ég held stundum að ég sé ein að gægjast hérna inn.

Nú er heldur betur farið að styttast í árshátíðina okkar góðu. Ég vil bara hvetja sem flesta til að fara því þetta er án efa stórviðburður og okkar síðasti séns til að sýna okkur og sjá aðra á okkar skólatíð. Það er líka alltaf gaman að klæða sig rosa fínt upp (segir prinsessan af Saba). Ég verð reyndar fjarri gamninu góða en og græt það söltum tárum . . . Ég ætla nefninlega að leggja land undir fór og skella mér til Manchester og verð reyndar þar uppstríluð í einhverjum VIP klúbbi en ég verð með ykkur í huganum oft oft um kvöldið því að ég græt það í alvörunni að vera ekki að koma. Var búin að redda mér kjólun og allt;). Fannst tilvalið að reyna að peppa ykkur upp í að fara.
Það er leikur í gangi inn á Eirarsíðunni og miðar á árshátíðina í vinning. Endilega kíkið þið á það.

Góða skemmtun þið sem ætlið. Var það ekki stefnan að allur bekkurinn færi??? Skora á ykkur.

Eva Björk

» 18 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 23:36:57 / baddý

Blessaða blaðið

Jæja nú fer að koma tími á blaðagerð. Þið sem sýnduð einhvern áhuga eða eruð til í að leggja mikla vinnu í að gera flott blað endilega mætið þá á fund í Þórunnarstræti 110 (kjallari) miðvikudaginn 6.feb kl 20:00. Það eru síðustu forvöð að skrá sig í blaðanefnd og er fundurinn ætlaður þeim sem virkilega langar að taka þátt og vera með.

Ef það eru einhverjar spurningar þá endilega bjallið í mig eða nappið á mér í skólanum eða msn:D

kv Baddý 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 18:27:32 / eva björk

MIKILVÆGT

Ágæti hjúkrunarfræðinemi!


Þriðjudaginn 29. janúar kl. 13:15 bjóða fulltrúar frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga,  hjúkrunarfræðinemum til fundar um kjaramál.  

Fundurinn verður haldinn í stofu L201 í húsnæði HA að Sólborg.

Á fundinum munu Elsa. B. Friðfinnsdóttir, formaður FÍH, Cecilie B. Björgvinsdóttir, verkefnastjóri kjara- og réttindamála, og

Unnur Þormóðsdóttir, formaður kjaranefndar FÍH, fara yfir kjarasamninga félagsins við ríkið, samningana framundan og svara spurningum.

Hjúkrunarfræðinemar eru hvattir til að mæta á fundinn.


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 19:20:37 / eva björk

SÍÐASTA Stóra Vísindaferðin og eitt partý

Takk fyrir síðast Hulda og Karó;)

 Fyrsta mál á dagskrá ef einhver kemur hér inn næstu tvo sólarhringana (líklegt8)) þá er partý hjá mér á laugardaginn ef þið eruð á leiðinni í djammskóna. Vink mínar eru að koma að sunnan og ég gæti ekki verið hamingjusamari. Verið þið allar hjartanlega velkomnar í Löngumýri 6 á laugardagskvöldið bara upp úr kl 21:00;)

En mál málanna!

Þá er komið að því sem allir eru búnir að bíða svo æsispenntir yfir. Ævintýraferðin sem hlutirnir gerast í;) Ástin kviknar á hótel Cabin sem og annar staðar og mannlífið í Reykjavík tekur á sig nýja mynd . . . kannski ekki alveg en allavega . . . . . STÓRA VÍSINDAFERÐIN SUÐUR ER Á NÆSTA LEYTI!

Pakkarnir eru eftirfarandi með niðurgreiðslu.

A.  Gisting og rúta . . .  fyrir þess flottu.

9800 kr. (sennilega ódýrasta helgarferð sem hægt er að fara í;0).

B. Gisting 5500 kr. fyrir 3 nætur á Hótel Cabin. . . fyrir þessa sætu.

C. Rúta báðar leiðir: 4300 kr . . . fyrir þessa hipp og kúl.

D. Rúta aðra leið: 3000 kr . . . fyrir þessa sem eru kúl.

E. Rúta fyrir þá sem ætla bara í vísindaferðina á föstudeginum: 1000 krónur . . . fyrir þessa sem eru töff.

Lagt verður af stað frá Sólborg, fimmtudaginn 31. janúar,  kl 13:00 STUNDVÍSLEGA!

__________________________________________________

Föstudagur 1. febrúar: Vísindaferðin okkar.

Mæting er kl 11:00 á Hótel Cabin.

Bráðamótttakan Fossvogi. Ba bú, ba bú, Þar koma inn öll alvarlegustu slysin og áverkarnir. Þar verður tekið á móti okkur og okkur kynnt starfsemin sem þar á sér stað.

Veritas Capital hf sem er með alls konar hjúkrunarvörur og lyf. Segja eflaust nokkra brandara enda staðsett í brandarbænum Hafnarfirði.

Janus endurhæfing Hf sem er atvinnuendurhæfing.  Þau eru mjög spennt að fá okkur. Kynnig sem allir ættu að hafa áhuga á.

Smá hlé verður þá gert á dagskránni svo þeir sem vilja geti sturtað sig, málað,  skipt um föt og/eða drukkið ef þeim sýnist svo.

Kl 20 verður svo farið út að borða á Cafe Victor, Hafnarstræti 1 – 3. Þar munum við hafa efri hæðina út af fyrir okkur og fáum tilboð á barnum;0).

Eftirfarandi 3 réttir verða í boði og gos er innifalið í verði;

1. Blandað forréttafat; kjúklingarvængir, jalapeno poppers, djúpsteiktar rækjur, Burritos með tilheyrandi sósum, grjónum og nachos.

Volg eplabaka með rjómaís. Verð saman 2100 kr.

2. Penne pasta með beikoni, sveppum og gráðostasósu og hvítlauksbrauði

Verð 1750 kr.

3. Kjúklinga Burritos með salsa, ostasósu, sýrðum rjóma og salati

Verð 1850 kr.

Laugardagur 2. febrúar: Frjáls tími. Væntanlega verður farið í sameiginlega vísindaferð. Nánar auglýst síðar.

Sunnudagur 3 febrúar: heimferð á hádegi. Allir sælir og glaðir.

Skráning hefst á eir@fsha.is miðvikudaginn 23. janúar kl  08:00 og stendur til 29. janúar kl 24:00.  Vinsamlegast skráið: fullt nafn, staðarnemi/fjarnemi, ferðapakka og matartilboð.

ATH. Það verða allir að skrá sig sem ætla að mæta í vísindaferðina okkar á föstudeginum.

Vonumst til að sjá sem flesta, sérstaklega á 4 ári;0)

Eva Björk og aðrir ferðeirarnir í stjórninni


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 13:36:03 / eva björk

Atvinnuauglýsing

Hæ hæ mínar kæru. Það er best að ég haldi bara áfram að blogga hérna á síðuna;). Ég var beðin að koma þessu hérna á framfæri til ykkar. kv, Eva Björk.

Kæru hjúkrunarnemar í HA

Ég heiti Eyrún Ólafsdóttir og útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HA árið 1999. Ég er nú deildarstjóri á bæklunarskurðdeild B-5 á LSH í Fossvogi og mig vantar hjúkrunarnema í hlutavinnu.   Á  B5  liggja sjúklingar með bæði bráð– og langvarandi bæklunarvandamál, þ.e. áverka eftir óhöpp eða vandamál sem hafa lagst á stoðkerfið yfir lengri eða skemmri tíma og þurfa rannsókn eða aðgerð þar við. 

Mörg áhugaverð verkefni eru framundan í sambandi við þróun hjúkrunar á deildinni. Í meðfylgjandi skjali er stutt kynning á deildinni og starfsemi hennar. Ég hvet ykkur til að hafa samband við mig og fá að koma og skoða deildina. Ég mun taka vel á móti ykkur.

Stutt kynning á bæklunarskurðdeild B-5 

Deildin er sérhæfð bæklunarskurðdeild (orthopedia) þar sem fram fer meðferð vegna áverka á stoðkerfi, auk hryggaðgerða og liðskipta  Sjúklingar sem leggjast inn á deildina eru annars vegar innkallaðir og hins vegar þeir sjúklingar sem leggjast inn í gegnum slysadeildina "akút" þ.e. án fyrirvara. Helst má nefna:

 innkallað:                           ísetning á gervimjaðmarlið                        ísetning á gervihnjálið                        lagfæring beina (osteotomia)                         bakspenging                        fjarlæging á aðgerðar-/aðskotahlutum (s.s. skrúfur og plötur) bráðainnlagnir:                          brot á lærleggshálsi (collum fractura)                        brot á lærleggshnútu (pertrochanter fractura)                        lærleggsbrot (femur fractura)                        mjaðmagrindarbrot (pelvis fractura)                        sköflungs- og/eða sperrileggssbrot                         ökklabrot                        samfall á hryggjarliðum/hryggbrot                        hálsbrot                        handarslys ýmiss konar                                    handleggsbrot (fram- og upphandleggsbrot)                        fjöláverkar   StjórnendurHjúkrunardeildarstjóri er Eyrún Ólafsdóttir. Yfirlæknir deildarinnar er Yngvi Ólafsson. Sviðsstjórar skurðlækningasviðs eru Lilja Stefánsdóttir sviðsstjóri hjúkrunar og Aron Björnsson sviðsstjóri lækninga. StarfsstéttirMargir starfsmenn, hver með sitt sérsvið, annast sjúklinginn. Þetta eru t.d. læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfarar, starfsstúlkur, iðjuþjálfi og ritari. Það er því mikilvægt að hjúkrunarfræðingur hafi yfirumsjón með þeirri þjónustu sem verið er að veita sjúklingnum hverju sinni. Upplýsingamiðlun milli samstarfsaðila er þar lykilatriði.  Þrettán sérfræðingar í bæklunarlækningum eru starfandi á deildinni. Þeir sérhæfa sig að vissu marki í ákveðnum bæklunaraðgerðum en skipta svo með sér vöktum og sinna þá þeim akút tilfellum sem inn koma. Undantekningar frá þessu eru sérhæfðar slysalækningar á börnum og handaráverkar  en vegna þeirra tilfella eru ákveðnir sérfræðingar ávallt á bakvakt.  DeildarskipulagÁ deildinni eru rúm fyrir18 sjúklinga og þar af eru 5 einbýli. Misjafnt er hve mörg rúm eru “opin” á hverjum tíma. Flestar stofurnar eru með sér salerni. Innst á ganginum er setustofa ætluð sjúklingum og aðstandendum þeirra. Skrifstofa deildarstjóra er staðsett á ganginum. Fremst á ganginum eru þrjár stofur sem tilheyra barnaskurðdeild og er rekstur deildanna algerlega aðskilinn. VaktafyrirkomulagMorgunvakt er frá kl. 08:00 til 16:00. Kvöldvakt er frá kl. 15:30 til 23:30. Næturvakt er frá kl. 23:00 til 08:30.   
Bottom of Form
Top of Form
    Sérhæfð hjúkrunarmeðferð á deild B-5Hjúkrunarmeðferð á B-5 felst að stórum hluta í endurhæfingu og því að aðstoða sjúkling við að hjálpa sér sjálfur (aðstoða hann til sjálfsbjargar). Mikilvægt er að nýtt starfsfólk kynni sér vel hreyfigetu sjúklinga eftir bæklunaraðgerðir. Meðferð hvers sjúklings fyrir sig hefur sérstöðu. Hópfræðsla fyrir sjúklingaSíðan í byrjun ársins 2003 hefur deild B-5 auk þess boðið upp á hópfræðslu einu sinni í mánuði fyrir þá einstaklinga sem eru á leið í gerviliðsaðgerð á mjöðm eða hné. Hjúkrunarfræðingur deildarinnar hefur yfirumsjón með fræðslunni en auk þess taka iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari þátt í henni. Fræðslan hefur mælst mjög vel fyrir.  Nánari upplýsingarNánari upplýsingar gefur hjúkrunardeildarstjóri B-5, Eyrún Ólafsdóttir, í síma 543-7470 eða 824-5958. Auk þess má finna ýmsar upplýsingar á heimasíðu B-5 sem er á slóðinni: http://www.hi.is/~hjjr/  


 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 15:55:09 / eva björk

Vísindaferð Eirar

Ég veit í alvörunni ekki hvort að það sem ég rita hér sé ætíð eingöngu fyrir sjálfa mig. 

Núna er ég er æst í að við fjölmennum allar (bjartsýn á nýju ári) í fyrstu vísindaferð annarinnar;). Hún verður föstudaginn 18. janúar kl 17:00 STUNDVÍSLEGA á dvalarheimilið Hlíð. Eftir það geta allir svo farið heim og borðað með famelíunni því það verður pása til klukkan 22. Þá verður dregið í æsispennandi happadrætti á efri hæðinni á Kaffi Ak. Hver fær tryllitækið??? Einnig verður boðið upp á fljótandi veigar.

Koma svo stelpur. Þetta fer að verða síðasti séns til að vera saman og tjútta og djamma áður en við þurfum allar að fara að vinna aðra hverja helgi og splittumst allar í sitt hvora áttina:(.

Kveðja, Súeina sem skrifar á síðuna. 

Ps. Þetta er bara upphitun fyrir laugardagskvöldið því þá verður rosalega svaðalegt djamm með háskólum sunnan heiða.   


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 17:33:23 / eva björk

Próflokadjamm stelpur;)

HÓ HÓ HÓ . . . 

Þá er þessari próftíð senn að ljúka elskurnar.

Próflokadjammið verður haldið á Kaffi Akureyri n.k. föstudagskvöld, 14. desember frá kl 20:00 - 24:00. Léttar veitingar í boði á meðan birgðir endast ásamt tilboðum á barnum.

Eftir miðnætti þá er spurning um að hitta aðrar deildir á Amour en það fer nú bara eftir stemmningunni á líðnum. 

Þeman í þetta skiptið eru jólalitirnir rauður, hvítur og grænn og hvetjum við sem flesta til að vera svolítið jolly og mæta í eða með eitthvað eftir þemunni eða hvað?

Gangi ykkur vel að læra undir stjórnun;-)

Eva Björk óstöðvandi


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 10:35:43 / karó

Nú verðum við að standa saman....

Eins og þið vitið þá eru sanningarnir lausir núna í vor og viljum við sem útskriftarnemar að styðja okkar fólk í kjarabaráttunni. Eitt af því sem okkur langar að ná fram í þessari kjarabaráttu er að samið verði við hjúkrunarfræðinema en til þess að það sé hægt verðum við að skrá okkur í hjúkrunarfélagið. Verða skráðir hjúkrunarfræðinemar að vera um 300 svo það sé nægileg forsenda fyrir því að samið verði fyrir okkur. En náttúrlega því fleiri því betra :)

Þess vegna skora ég á alla hjúkrunarfræðinema að skrá sig í hjúkrunarfélagið sem fyrst.

Til þess að þetta sé hægt verða bæði HA og HÍ nemar að standa saman og skrá sig :D

Farið inn á www.hjukrun.is og veljið: Umsókn um aðild - þar finnið þið umsóknareyðublaðið og fyllið það samviskusamlega út :D

Áfram hjúkrunarfræðingar og nemar 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Dagsetning
28. janúar 2012
�?TSKRIFT
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1330 dögum
Könnun
Hlakkar ÞÚ til að hætta í skólanum?




Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 119555
Leitarbox